Við erum hér fjórar manneskjur í leit að húsnæði í kaupmannahöfn fyrir sumarið. Við höfum nú ákveðið að leyfa ævintýraþránni að leika lausum hala næsta sumar og ætlum við að halda til Köben til að kanna nýja menningu og hitta nýtt fólk (sama gamla tuggan, en hún virkar) en það eina sem stendur í vegi fyrir okkar óbeisluðu ævintýraþrá er húsnæðisleysi. Með bjartsýnisbros á vorum og með ykkar hjálp vonum við að einhver snillingurinn geti annaðhvort boðið okkur íbúð eða veitt okkur upplýsingar um hvernig best sé að haga sér í slíkum málum.

Ef einhver hefur áhuga á að leigja okkur íbúð þá getur hann haft samband við okkur á dadawg@visir.is