Time of the Twins Time of the Twins, fyrsta bókin í Dragonlance Legends þríleiknum.

Ég er einmitt að lesa þessa bók núna og líst bara andskoti vel á hana. Forveri seríunnar, Dragonlance Chronicles, er mín uppáhaldssería (að Lord of the Rings undanskildri) enda afar vel skrifað efni hér á ferð með almennilegri persónusköpun og persónuþróun á skala sem er sjaldséð í ævintýrabókum.

Mæli eindregið með Dragonlance heiminum fyrir þá sem geta lesið ensku og vilja kynna sér eitthvað skemmtilegt og djúpt.