Mjög furðulegir draumar

Mig dreymdi þrjá drauma 3 daga í röð og voru þeir allir um einhverjar óvættir.
nr. 1 var að ég var í gömlu húsnæði og þar var púki eða einhver djöfull sem var búin að koma sér þar fyrir, þá lak eitthvað úr honum og ég kveikti í því og það brann greinilega mjög eldfimt. Svo var slóð eftir hann með þessu efni og ég kveikti í því og hann brann.
nr.2 Ég var í tívolí og þurfti að forða mér upp á þak á kofa til að varúlfarnir mundu ekki ná mér. (fattaði þennan sko ekki?)
nr.3 Ég var að horfa í spegill og ég fór að breytast í speglinum og þá varð ég illa hrædd því (manneskjan) í speglinum var ógeðsleg og ótrúlega grimm (Fannst það) og með dökka húð og rauð augu. Ég vildi ekki að hún kæmist út þannig að ég gat ekki horft í spegilinn.

Undarlegir draumar.
~Good better best~