Mig dreymdi í vikunni hræðilega martröð!!!!! Ég var í einhverju afmæli hjá stelpu sem ég veit hver er en býður mér auðvitað aldrei í afmælið sitt og ég ekki hennar. En hvað um það. Ég þurfti að kúka!!!! Ég hljóp inn á klósett og settist á það. svo er ég með ógeðslega hausverk og lít í spegil (sá samt ekki sjálfa mig í speglinum) sé ég þá að ennið á mér er marið og innfallið…ég er þá komin með heilaæxli…ég tek heilann úr mér, skoða hann og get ennþá séð hugsanir í honum! Ég sé að ég hugsa.."Hvað ef ég hendi heilanum mínum í ruslið, þá get ég misst minnið og aldrei þekkt fjölskylduna aftur. Þá vakna ég!