Kæru Hugarar!
Mig langar að deila með ykkur nokkru sem kom fyrir mig fyrir nokkrum mínútum.

Ég var að fara í sturtu og fór inná bað og var að fara að finna rakvélina mína. Hún er vön að vera á borði sem er við hliðina á vaskinum en hún var ekki þar, bara stórt autt pláss þar sem hún er vön að liggja á hulstrinu sínu. Mér fannst þetta mjög skrítið þar sem rakvélin er ALLTAF þarna en ákvað þó að leita betur.
Kíkti inn í alla skápa á baðinu og svo aftur gaumgæfilega á borðið en fann hvergi rakvélina.
Þannig að ég ákvað að fara inn í herbergi til að athuga hvort hún væri nokkuð þar, þó hún væri þar aldrei.
Og ekki var hún þar!
Svo mín fer aftur inn á bað, og viti menn!! Rakvélin liggur á borðinu í plássinu sínu þar sem hún er alltaf vön að vera!!
EN ég get svarið það við líf mitt að hún lá ekki þar fyrir 2 mínútum..

Þetta er reyndar ekki í fyrsta skipti sem svona nokkuð kemur fyrir heima hjá mér. Það er eins og það sé einhver að stríða mér, stundum er verið að slökkva og kveikja ljós og fleira.
Ég finn samt ekki fyrir neinu slæmu það er bara eins og það sé eitthvað hrekkjusvín á ferð.

Og nú var ég að hugsa: Hefur eitthvert ykkar lent í einhverju svipuðu??
Þið megið alveg segja frá því-mér mundi líða betur að vita að ég er ekki ein í draugaganginum …
Eða hvað sem þetta er!!
Það versta er að maður veit EKKERT …

kv.Mey

p.s. Þeir sem trúa ekki þessari frásögn, þó hún sé vitanlega sönn, mega vinsamlegast sleppa því að setja inn comment.!