mig langaði bara að fá að vita hvort einhver hérna vissi hvað þetta þýðir.

annar draumurinn þá var ég staddur útí skógi og var leiddur áfram af einvherjum asíubúa með byssu í hendinni ég var bundinn með hendur fyrir aftan bak og sagði hann mér næst að krjúpa… ég gerði það og þá skaut hann mig í hausinn og það furðulega við þetta er að ég var ekki hræddur.

í hinum drauminum var ég staddur í einhverri verslunarmiðstöð og hitti ég þar mann og ég vissi strax að þetta væri djöfullinn sjálfur. Hann bauð mér alskonar hluti, vald, peninga… name it og ég tók við þessu. eftir það hitti ég fjölskyldu mína og allir voru hræddir við mig og mamma mín skammaðist yfir því hvernig ég væri orðinn.

mig hefur oft dreymt ókomna atburði þótt að það sé nú frekar langsótt að seinni draumurinn verði að veruleika en endilega ef einhver hefur hugmynd um merkingu annað hvorts þessara drauma endilega svarið.

Azmodan.