Það eru skrítnir hlutir að gerast við mig og vinkonu mína, þetta byrjaði allt eitt kvöld þegar ég var að gista heima hjá henni eftir ball. Það var alveg orðið ógeðslega heitt inní herberginu (við vorum í sama rúmi með bara eina sæng) þannig að ég stóð upp og ætlaði að opna gluggann, þegar ég dró upp gluggatjöldin stendur þar maður, gamall, í grænum frakka, alskeggjaður og með húfu. 'Eg hendi mér aftur í rúmið til vinkonu minnar og þá segist hún hafa séð hann líka, þó að hún hafi verið uppí rúmi með lokuð augun. Við förum að tala um hann og þá kemur í ljós að þetta er sami maðurinn. Við verðum ógeðslega hræddar og finnst eins og hann standi yfir okkur alla nóttina. Ég hef alltaf verið skyggn en hún hefur aldrei séð né fundið fyrir neinu. Síðan þetta gerðist hefur maðurinn verið hjá okkur á nóttinni og við heyrum alskonar hjóð, eins og einhver sé að öskra af sársauka og eins g einhver sé að kalla á okkur satanslaust, Það hefur líka verið eins og það sé einhver að hlaupa á efri hæðinni hjá okkur fram og til baka á alveg methraða. Þetta er að verða soldið ógeðslegt því að allir "vinir,, okkar eru allt í einu orðnir hundleiðinlegir við okkur og ignora okkur alveg, öll einkamál eru komin út í rassgat og þetta fór allt að vera svona slæmt eftir að við sáum hann. Hvað eigum við að gera ????? okkur vanta hjálp !!!!!!
It´s not easy having a good time, even smiling makes my face ache !