Jæja nú er komið að því að ég skrifi smá pistil..
Mig langar nú bara að segja frá minni reynslu af sálarflakki svo að þeir sem eru þarna úti geti borið saman við og sagt mér jafnframt frá sinni reynslu.
Þetta byrjaði hjá mér að ég var alltaf að vakna á næturna alveg frosinn á mér líkaminn gat ekki hreyft mig neitt og ég var náttúrulega frekar hrædd og skildi ekkert hvað var að gerast. Svo var þetta farið að gerast á hverri nóttu og fylgjandi þessu var að ég sá oft eitthvað fólk inní herberginu mínu. (þetta með að vera alveg stífur hef ég lesið að sé mjög algengur aðdragandi)
Það sem ég gerði var að ég einbeitti mér bara stíft og þá gat ég komist út þessu ástandi svo varð ég að standa upp og fá mér vatn og legjast svo aftur. ( ef ég gerði það ekki þá vaknaði ég bara aftur nokkrum mínutum seinna í sama ástandi)
Svo eitt kvöld þá ákvað ég í stað þess að streitast á móti að slaka bara á og sjá hvað myndi gerast. Ég andaði bara rólega og lá kyrr og fannst ég ekki jafn stíf léttist til og e-ð svo var ég bara að stara út í loftið og þá fannt mér ég vera kominn soldið nálægt loftinu í herberginu mínu leit niður og brá alveg rosalega við að sjá rúmið mitt þarna lengst fyrir neðan og þá pommsaði ég niður OG ÉG DÚAÐI Á RÚMINU svo bara lá ég í sjokki . Hvað var eiginlega að gerast. Fannst þetta alveg ótrúlegt en gott að minn vinahópur er frekar opinn fyrir þessu og ég gat sagt þeim frá mínum upplifunum og þau hlustuðu án þessa að gagnrýna.
Hef gert þetta nokkrum sinnum síðan (þetta er orðið svo langt þannig að ég segji kannski bara seinna frá öðrum ævintýrum) en er nú ekki alveg örugg með sjálfa mig af því að þetta er svo skrýtið. Þetta er eins og að vera í annarri vídd. Þegar ég vakna svona stíf þá er eins og ég sé svona 1cm fyrir utan líkamann, liggi svona smá fyrir ofan svo að með því að slaka á þá get ég losnað frá.
Nú er ég að segja frá þessu og ekki til að fá e-a gagnrýni. Þetta er e-ð sem ég upplifði og segji frá eins hverdagslega og að ég fór í bíó um daginn eða þvíumlíkt. Það sem mig langar að fá heyra er ykkar reynsla .. fáiði svona stíf einkenni eða e-ð annað og hvað fleira??
Hlakka til að heyra frá ykkur .. og endilega kíkið á
www.spiritweb.org það er alveg mögnuð síða og mjög góð umfjöllun um O.B.E á síðunni og bara margt fleira gagnlegt!