Mér datt í hug að skrifa um reynslu mína um sefnrofalömun fyrst að það kom góð gein um þetta fyrirbæri. Ég verð að viður kenna að ég vissi ekki að þetta væri líffræðilegt fyrirbæri fyrr en ég sá greinina, og ég verð að segja að mér er stórlétt….

Ég hef upplifað þetta svo oft eftir þetta að ég get ómögurlega sagt til um rétta röð á atburðunum, en oftast er þetta mjög svipað… ég vakna upp og get ekki hreyft mig en ég er með opin augun, ég reyni og reyni að hreyfa mig en ekkert gerist og ég er með tilfiningu að ef ég hætti að reyna að snappa úr þessu þá muni ég detta niður í einhvað svart, en á alltaf á endanum næ ég að “vakna”.
Þannig ég bara skrifa um þessar helstu og atburðar mestu.
Í fyrsta skifti sem ég upplifði þetta, var á milli jóla og nýárs 2000-2001. Ég var í heimsókn hjá vínkonu minni sem býr á vestfjörðum, við vorum bara 14 ára þannig ég gisti uppí hjá henni. Ég vakna upp um miðja nótt með hálf opin augun og finn þyngsli á bringunni, þannig ég átti erfitt með að anda, þetta ástand var frekar lengi veit samt ekki hversu lengi, allt í einu fynnst mér eins og ég sé að snúast í áttina að vinkonu minni, og ég reyni eftir öllu mætti að snappa úr þessu en ekkert gerðist og ég var orðin svoldið mikið skelkuð, svo allt í einu lendi ég á gólfinu og snappa strax úr þessu. Vínkona mín svaf fyrir innan þannig að þegar mér fannst einsvo eg var að snúast í áttina til hennar þá var ég í raun og veru að snúast í öfuga átt þannig ég datt á gólfið….


Í fyrsta skifti sem ég upplifði þetta, var á milli jóla og nýárs 2000-2001. Ég var í heimsókn hjá vínkonu minni sem býr á vestfjörðum, við vorum bara 14 ára þannig ég gisti uppí hjá henni. Ég vakna upp um miðja nótt með hálf opin augun og finn þyngsli á bringunni, þannig ég átti erfitt með að anda, þetta ástand var frekar lengi veit samt ekki hversu lengi, allt í einu fynnst mér eins og ég sé að snúast í áttina að vinkonu minni, og ég reyni eftir öllu mætti að snappa úr þessu en ekkert gerðist og ég var orðin svoldið mikið skelkuð, svo allt í einu lendi ég á gólfinu og snappa þá strax úr þessu. Vínkona mín svaf fyrir innan þannig að þegar mér fannst eins og ég var að snúast í áttina til hennar, þá var ég í raun og veru að snúast í öfuga átt, þannig ég datt á gólfið….

Þessi er hvar ég fékk hvað mestar ofskynjanir…
Ég sat upprétt og var að horfa á sjónvarpið (sat meira að segja við hliðina á pabba mínum) allt í einu finn ég að ég get ekki hreyft mig og ég er fyrir framan spegil og ég sé að augun eru hægt og hægt að verða svört, svo kemur andlit af manni fyrir aftan mig í speglinum og svo eg ég tekin hálstaki (af manninum sem ég sá aðeins í speglinum) og ég á erfitt með að anda og fæ köfnunar tilfiningu, svo verður allt rautt í smá stund og köfnunartilfiningin er áfram, svo verður allt skýrara og þá lygg ég í rúmi með rauðum sængur fötum og maðurinn fyrir aftan mig en með hálstakið, ég er enn nátla að reyna að losa mig og loks tekst mér það… og ég hrekk upp, og varð reið við pabba yfir að hafa ekki pikkað í mig eða einhvað og gargaði einhvað á hann….. Smá rugluð sko…. var líka bara í hálfgerðu sjokki, var næstum köfnuð…

Svo eitt skipti vakna ég snemma morguns (það var allavegna bjart úti) og ég finn að ég get ekki hreyft mig og ég byrja að svífa upp … í fyrstu sé ég bara loftið koma nær en svo snýst ég við og horfi niður á sjálfa mig og kærastan.. Ég svíf bara mjög hægt upp og hrekk upp þegar ég fann að bakið sneti loftið.

Eina nóttina þegar ég er að fara að sofa finn ég að ég get ekki hreyft mig og þyngsli eru á líkamanum þannig ég fæ smá innilokunarkend, svo heyri ég með ekkert smá ógeðslegri röddu “ertu ekki að fara að vakna” alveg upp í eyranu á mér, hrekk upp stax og ég heyrði þetta öskrandi…. Þarna var ég skelfilega hrædd, því nágranni okkar var nýlega búin að fremja sjálsmorð ég hélt að þetta hafi verið hún. (var einhvað rugluð greyið) Hún hafði alltaf einhvað á móti mér, kendi mér einu sinni um að hafa komið inn til hennar og stolið gull keðju og einhvað svoleiðs, og hringdi einu sinni í pabba minn til að vara hann við að ég væri ekki eins saklaus og ég sýndist vera??? En allavegna meigi hún hvíla í friði.

Endilega segið mér meira um ykkar reynslu.