Lifðu frá þínum innsta kjarna, frá hjartarótum þar sem kærleikurinn bíður. Dragðu þitt innsta eðli upp á yfirborð þitt svo ekkert annað fái að skína. Þá kemur öll okkar viska og sannleikur í ljós. Leyfðu sannleikanum að njóta sín þá mun sérhvert andartak skína dagsins ljós frammi fyrir þeim sem við erum. Enginn mun blekkjast af sannleikanum sem vísar veginn heim. Það er búnaður minn sem skrifar þessi orð, sem gerir mér sálinni kleift að koma með sannleikann um hver við erum. Það er svo dásamlegt að ná því hver við erum því það er heilun fyrir líkama og hug. Án hugans gæti ég ekki tjáð mig svo farið vel með búnað sálarinnar, sem sagt líkamann. Þetta er dásamlegt, ég veit hver ég er. Þökk sé Guði, þér góði Guð, skapari alls. Ég er viskan, lífið sjálft, óstöðvandi orka sem flæðir um allt í hverju lífi. Kallið á mig, ég þarfnast ykkar og þið þarfnist mín. Ákallið mig, ég er alltaf hjá ykkur. Tilfinningin sem þið berið í brjósti ykkar, kærleikurinn.

Hlustið og ykkur mun skiljast hver það er sem er að tjá sig. Það er sannleikurinn sjálfur, Guð skapari alls. Þið hafið allt innra með ykkur, þið þurfið ekki að óttast. Aðeins að vera varkár og staldra við. Þegar þið verðið hrædd, reið, vonsvikin, haldið stundum að þið séuð ein þá leitið inn á við, þar er ég. Og hugga ykkur, leiði ykkur inn á rétta braut, braut lífsins. Fögnuðurinn, þið þurfið aðeins að vera þolinmóð og ég mun uppljúka hverjum sannleika á fætur öðrum. Svo lifið lífinu lifandi í anda, þá gengur líkamanum betur að fylgjast með og vera í samræmi. Verið með meðvitund og hlustið á líkama ykkar því þar fáið þið skilaboðin í hjarta og huga. Hlustið með innri heyrn. Þar eru leiðir ykkar öllum færar og allt svo mikið auðveldara því hugsanirnar villa svo hreinsið hvert hugarhvel ykkar innra með ykkur. Svo sían sem ég sendi ykkur boð um sé ekki stífluð af óhreinum hugsunum, sýktum hugsunum. Minnist mín ávallt því ég fer hvergi.

Það er ekki sá staður sem ég er ekki. Ég veit allt um ykkur því ég bý innra með ykkur. Þið finnið fyrir mér en afneitið mér. Ég er tilfinningin sem ber í brjósti ykkar þegar ykkur finnst þið ekki vera að segja satt eða þið gerið eitthvað sem þið vitið að þið eigið ekki að gera. Það er einmitt ég sjálfur, skapari ykkar sem fylgist með en þið lokið á mig og réttlætið þannig fyrir ykkur. T.d eina sígarettu, en innra með ykkur finnið þið “nei ég ætti ekki að vera að þessu” segir ljúfa röddin. En sígarettan er dregin upp og kveikt er í. Svo farið þið að brjóta ykkur niður fyrir að hafa ekki hlustað á ykkar innra eðli sem er ég sjálfur Guð að tala við ykkar. Þá fara hugsanir að villa fyrir ykkur, draga ykkur frá ykkur sjálfum með því að segja að þetta sé allt í lagi. Þá eruð þið á góðri leið með að fara villu vegar en ég er ávallt innra með ykkur. En þið virðist stafla ofan á ykkar hreinu tilfinningar, ótta, reiði og áhyggjum og þið ætlið að reyna að bera áhyggjur, kvíða, ótta og gremju á herðum ykkar í stað þess að gefa þetta til mín, skapara ykkar sem er innra með ykkur öllum.

En margt hafið þið látið draga ykkur frá mér og látið ykkur leita út á við sem er ekki sú rétta leið. Leyfið mér að bera áhyggjur ykkar eða ótta, reiði, öfund og hatur. Ég tek við þessu öllu og eyði. Því gefið gefið gefið og ykkur mun gefast. Amen.