Jæja, gott fólk.
Nú ætla ég að segja ykkur rosalega skemmtilega sögu frá einni bústaðarferð sem ég fór fyrir um það bil 2 mánuðum.

Ég ætla að segja ykkur frá laugarkveldinu en ég fór nefnilega heim á laugardags morgni og kom svo aftur um kvöldið, og á föstudeginum hafði verið alveg rosalegt partý.

Ég fór heim vel þunnur og keypti mér svo auka bjór, sígarettur og reddaði mér fari með vini mínum.
Við lögðum af stað um 8 leytið uppí bústaðinn og vorum komnir um 9 leytið.
Núna ætla ég að stökkva yfir heilmargt og fara í það að ég er búinn með bjórinn minn og er orðinn vel fullur.
Ég man að ég skreið einhvern veginn uppí háaloft þar sem ég datt niður hálf-dauður og vinur minn spurði mig hvort ég þyrfti nokkuð að æla.
Ég svaraði honum með einni stóri bunu og ældi yfir allar sængurnar og koddana.
Svo fór ég niður með vini mínum sem sagði mér að fara í pottinn, og ég man bara eftir öllum haldandi fyrir nefið á sér og hugsa hve ógeðslegur ég væri.
Vinur minn, fínt að nefna að hann heitir Guðjón, kallaður Gaui, henti mér ofan í pottinn og ég þreif mig allann í framann, og ekki var potturinn lengi að breyta um lit.
Svo þegar ég var búinn að þrífa mig ágætlega vel þá var ég bara alveg vaknaður og ferskur sem 6 ára krakki að fá lego í skóinn :)
Ég hoppaði uppúr pottinum og dreif mig í Joe Boxer náttbuxurnar mínar og fór svo að leita mér að mat og bjór.
Allir voru skellihlægjandi að mér og segja að ég lyktaði verr en ég veit ekki hvað :S
Svo var félagi minn þarna með video-gsm og tók upp skemmtilegt myndband af mér sem ég man nánast ekkert eftir og ég skal sýna ykkur linkinn á það myndband á eftir.

Allavega, þetta var helvíti skemmtilegt kvöld.
Ég týndi 5000 kalli, ældi á allt draslið mitt, fann smokk sem innihélt æsi spennandi tattoo og ég fékk að þrífa háaloftið morguninn eftir, með timburmenn lengst uppí rassgat :)

Hér getið þið séð þetta skemmtilega video af mér :)

[youtube]http://youtube.com/watch?v=QSs5Xry9scw