Jæja hér vilja ég deila með ykkur smá broti af huhum já drykkju sögu….
Þetta var einn dag í maí mánuði og
Ég ætlaði nú að djamma eftirminninlega þessa helgi og keypti mér 1lítra af Vodka… Ég fór heim og borðaði fullan disk af spagettíi(sem ég sá hræðilega eftir daginn eftir)
Jæja seinna um kvöldið bauð vinur minn (sem ég var orðin hrifin af )mér í partý til vinkonu minnar(hún átti afmæli).
Um níu leytið kem ég á staðin, þá eru bara 15 manns þarna í chilli) ég byrja að spjalla við fólk sem ég þekki þarna og tek svo eftir að strákurinn sem ég er hrifin af er ekki mættur. Ég spyrst fyrir um hann og fæ þær upplýsingar að hann hafi farið útí sjoppu að kaupa bland…
Ég verð frekar stressuð og ákveð að hözla hann þegar hann kemur (ég var byrjuð að drekka) Þegar hann kemur er ég orðin ágætlega ölfuð faðma hann hæ og sest svo hjá vini mínum og byrjaði að spjalla.. vinkona mín kemur svo og dregur mig útá dansgólf (það var byrjað að fjölga vel mikið í partýinu)
———————-BLACK OUT——————————-
Vinir mínir eiga heiðurinn af því að muna restina af sögunni:
————————————————————–
Ég held stanslaust að drekka og á endanum biður vinur minn(sem ég var svo hrifin af) mig um að setjast hjá sér, svo byrjum við að slummast… nokkrum mínútum eftir að slefið slitnaði á milli okkar sat ég í fanginu á honum og hann spyr mig hvort að ég þurfi nokkuð að æla….Ég segi nei og æli svo yfir hann (buxurnar bara held ég og sokkana) Ég æli svo yfir mörg þúsund króna sófasett…
SVo þegar ég er búin að æla öllu helvítis spagettíinu yfir margan mannin er ég sett inní herberi því ég var að drepast…
Seinna þetta kveld kem ég framm (veit ekki hvað ég gerði) svo á vinur minn(ekki strákurinn sem ég var svo hot fyrir) að hafa borið mig inná bað og ég ælt í vaskinn…. Svo ældi ég e-h meira svo hætti ég að anda og er orðin fjólublá og græn í framan og allir í sjokki og vita ekki hvað þau eiga að gera (sumar stelpur voru hálf volandi) loks fattar hann að stinga puttanum uppí kokið á mér og ég æli beint framan í hann!! OG hreyfist svo ekki meir. Hann byrjar að hrista mig til og segir “ég bjargaði lífi þínu” þá ranka ég við mér horfi á hann og segi “gott þig” Ég sagði þetta víst af því að ég var nýbúin að æla framan í hann… en allavega ég gerði fullt af alskonar shiti í viðbót sem ég hef neitað að heyra (ég held fyrir eyrun og labba í burtu)
Um 2 leytið er hringt heim til mín og tilkynnt pabba mínum að ég sé orðin aðeins og full og spurt hvort að hann sé ekki til í að sækja mig… Á leiðinni út tek ég skóna sem e-h strákur á
Eftir smá tíma kemur hann og “hendir mér inní bíl eins og ég sé
e-h rusl” að sögn fólks sem sá þetta. Í bílnum á hann að vera að babla um það að þetta sé ekkert sniðugt og fleira….
Þegar ég vaknað um morguninn vaknaði ég klukkan 1 ógeðslega þunn og það var viðbjóðslega vond lykt af fötunum mínum. Mamma mín var nýfarin út og ég flýti mér heim til vinkonu minnar og fer að tjá mig um hversu illa mér líði… Ég þreyf mér um hárið og fór til vinkonu minnar sem hélt partýið….
Ég hafði gleymt símanum mínum svo ég gat ekki hringt neitt.. en allavega bróðir hennar horfði skringilega á mig og sagði mér að hún væri sofandi…
Ég var ekki alveg til í að fara heim og face-a foreldra mína…
kíkti til vinar míns og þar fékk ég að heyra um atburði næturinnar.
Sem mér fannst óskemmtilegt.
Stuttu seinna kemur frændi minn og strákurinn sem ég var svo hrifin af….
Þeir glotta bara og útskýra fyrir mér að ég hafi tekið vitlausa skó þarna um kveldið og strákurinn vilji fá þá aftur.
Svo er mér sagt að þau hafið leita hátt og lágt af símanum mínum og að hann sé algjörlega týndur…… Pabbi minn átti símann!!!!!!!!!
Og þeir segja mér að því miður hafi þeir ekki nennt að koma með Vodkaflöskuna mína því hún væri tóm eftir gærkveldið… Ég kláraði hana á klukkutíma….
Foreldrar mínir skömmuðu mig lítið sem ekkert og það var aldrei talað um þetta meir… Ég var sett í 2 vikna straff…:(
Mér leið illa í mánuð yfir þessu og ég er ennþann dag í dag að biðja fólk afsökunar´á því sem ég gerði við það (hvort sem ég ældi yfir það, tók skóna þess eða skemmdi hluta af kvöldinu fyrir því!)

ÞAð eina sem ég get sagt að hafi verið það sem mér langaði að gera um kvöldið var: strákurinn sem ég var hrifin af slummaði mig (en ég man ekki eftir því), ég varð full(einum OF), og kvöldið varð eftirmnninlegt……fyrir alla nema mig því að ég man ekki eftir neinu af þessu!!! En ég var hrifin af þessum strák í nokkra mánuði eftir þetta kvöld….
Ég byrjaði svo með honum nokkrum mánuðum seinna og við vorumsaman í 3(yndislega)mánuði. Þangað til að við tókum hlé og hann vildi ekki taka saman eftir 1 og hálfs viku hlé.

En allavega það sem ég lærði af þessu kvöldi var að
#allt er gott í hófi#

Ps:ég nota oftast nickið SlipiCat
SHG