Jæja eftir nokkrar misheppnaðar tilraunir(sem sagt allar helgar síðan um áramótin) til að djamma smá eftir ömurlegu áramótin mín síðast buðu strákarnir í vinnunni mér og vinkonu minni(sem var skölluð í fyrri grein) í partý þar sem að við voru að gera okkur að fíblum fyrir þá þegar þeir voru að spila í fyrirtækjakeppni í fótbolta.
Allavega við fórum þarna um tólf leitið og það var rosalega fínt…. jæja þegar allir voru búnir að drekka og fólk orðið misjafnlega ölvað var ákveðið að fara niður í bæ (kl var um 2) vorum smá tíma að koma öllum í leigubílinn. Þegar komið var niður í bæ ætluðum við á Sólon… strákarnir voru komnir inn þannig að við drifum okkur í röðina sem varð allt í einu afskaplega löng og var ekkert að ganga neitt hratt fyrir sig því að þeir hleyptu svo fáum inn í einu… þegar ég var svo í röðinni kemur ógeðslegur gaur inn í röðina þar sem að ég var og byrjar að ýta feitt á mig…. ég lít á hann og bið hann um að hætt að ýta á mig….. hann hló bara að mér og ég sé að gaurinn er eiginlega ljóstrauðhærður… með skegg útum allt… sítt og ekki snyrt… með spangir. Hann var ekkert smá andfúll, var með spangir og þegar hann var e-ð að tjá sig spýttist munnvatnið langar leiðir….. eftir smá tíma byrjaði hann aftur og ég fann þá að hann var bara með hann bein stífann að nudd'onum upp við lærið á mér eins og hann væri hundir…. vá hvað ég varð pirruð… hann var ekkkert á því að hætta og á endanum öskraði ég á hann og ýtti honum í burtu… þá horfðu bara allir á mig eins og ég væri e-ð geðveik….. og hann sagði bara : hvað? það er verið að ýta á mig…. og það ömurlega var að það var enginn fyrir aftan!!! ohh hvað ég þoli ekki svona fólk niður í bæ.
Gaurinn var ekkert á því að hætta þannig að ég og vinkonan fórum úr röðinni því að ég nennti ekki að standa í þessu ógeði …
Ég fór eftir það bara niður á Gauk en þá voru afskaplega fáir þar og lítil sem engin stemmning.. var frekar pirruð þar sem að það var kalt úti og ég nennti þessu ekki þannig að klukkan 4 fórum við heim eftir leiðinlega bæjarferð……………

Þannig að núna hef ég ákveðið að djamma ekkert á næstunni…
ég er hætt… í bili

Ætla bara að vera heima næstu helgi.. vinna og fara svo heim með víbrador og klámspólu….

Nenni þessu kjaftæði ekki….

Kv
SHG
SHG