Ég vil byrja á að lýsa yfir uppgjöf á áður yfirlýstri stefnu í sambandi við P4a, og ég legg það formlega til að við Hugarar hættum algjörlega að svara honum. Þessi óhróður, sem maðurinn breiðir út um málefni sem hann hefur greinilega ekki hundsvit á, hættir vonandi ef við allir sem einn hættum að svara honum, ALGJÖRLEGA.

Ég met það svo að hann sé ein mesta fyrirstaðan í að gera deigluna að áhugaverðu áhugamáli þar sem málin eru rædd málefnalega.

Þess vegna skora ég á ykkur Hugara að ignora manninn algjörlega.