Saddam Hussein verður tekinn af lífi í nótt, segir í frétt frá mbl.is sem birtist í kvöld.

Segir Saddam verða tekinn af lífi í nótt
Háttsettur íraskur embættismaður segir, að Saddam Hussein, fyrrum forseti Íraks, verði tekinn af lífi fyrir klukkan 3 í nótt að íslenskum tíma. Sagði embættismaðurinn, sem vildi ekki láta nafns síns getið, að þetta hefði orðið að samkomulagi milli bandarískra og íraskra embættismanna. Munu Bandaríkjamenn framselja Saddam til Írakan skömmu áður en aftakan fer fram.

Mér hrýs hugur við þessu öllu saman, það á að lítfláta mann sem fannst á vonarvöl í niðurníddri holu, lúsugur og ræfislegur.

Það er ekki bara líflátið heldur hvernig þeir ætla að lífláta hann, hengja hann. Mér finnst það hryllilega berserkslegt og ógeðfellt.

Það á mörgum eftir að hefnast fyrir þetta, saklausu fólki. Sannið bara til.