Eftir að hafa lesið greinina “Þetta fólk” hef ég ákveðið að búa til kork hérna..

Ég horfði á fréttirnar áðan eins og kannski margir og er búinn að bæta Hollendingum við listann yfir þjóðir með kexruglaða stjórn.

Þeir hafa fyrirhugað að leggja bann á að konur gangi með slæðu í andlitinu. Það veit það hver maður sem hefur lesið sér EITTHVAÐ fyrir um íslam að þessi blæja, slæða eða hvað sem fólk vill kalla þetta er EKKI VANDAMÁL.

Ég veit ekki hvort ég á að hlæja eða gráta yfir þessum heimi. Eru Hollendingar virkilega svona heimskir? Af hverju eru Vesturlönd svona? Er Ísland líka að verða svona?

En jæja, ég vil ekki láta þetta líta út eins og útbrunna sápuóperu sem einhver kall talar inn á og spyr endalaust spurninga.

Endilega segið mér hvað ykkur finnst um þetta