Er ég sá eini sem er ekki sáttur með að Árni Johnsen hafi náð 2. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins? Maðurinn stal almannafé og laug að þjóðinni. Það er fyrir nóg af lygurum á þingi. Ef það er eitthvað sem Íslenska þjóðin kann ekki þá er það að muna. Ef eitthvað hneykslismál er í gangi eru allir búnir að gleyma því eftir viku. Svo sem þjófnaði olíufélaganna, þau eru ekki ennþá búin að borga þessar skuldir sínar þó þær hafi verið lækkaðar um hundurið milljóna.

Ráðherra í Danmörku lét sig hverfa af þingi eftir að hann hafði drukkið heldur mikið í jólaveislu og verið með læti. Kunnum við Íslendingar ekki neitt annað en að láta taka okkur í rassgatið?