Ég skil ekki hvað fólk hefur á móti þjónsöngnum okkar?! Hann gæti ekki orðið fallegri og ljóðið líka. Mig langar að koma af stað smá átaki fyrir ykkur sem þola hann ekki og líka ykkur sem þola hann! Prófiði að raula lagið bara smá ég er ekki að biðja ykkur um að syngja hann allan bara fyrsta erindið það er að segja ef þið kunnið lagið. Ég veit ekki með ykkur en ég fæ brjálaða gæsahúð!! Þessi þjóðsöngur getur ekki verið betri og þessi hugmynd með God bless America er heldur ekkert sniðug! Svo sagði hér einhver með annari grein að í ljóðinu væru menn að lofsyngja drottinn í bak og fyrir! Það er bara verið að tala um Guð! Ókei, það er líkt en er Allah ekki Guð? Guð getur þýtt svo mikið meira heldur en sá Guð sem átt er við í Kristnu Biblíunni.

Ég er bara að reyna að fá ykkur til að hugsa
*Snappy*