Palestínsku hryðjuverkasamtökin hafa framið enn eitt fjöldamorðið Í Ísrael og nú var skotmarkið srætó fullur að krökkum og fólki á leið til vinnu. Árásarmaðurinn var 19 ára og var faðir hanns mjög ánægður með hann en það hefur nú örugglega eithvað með tékkan frá Saddam að gera.Nú er Arafat og hans menn fljótir að fordæma og þvo hendur sínar, en segja svo í hinu orðinu að þetta sé nú bara Ísraelum að kenna. Þetta er alveg í stíl við lygalaupin Arafat sem talar fallega í vetrænu medíuna en æsir liðið upp í heilagt stríð í arabísku sjónvarpi. Hann talar um að ætla sér að verða píslarvottur en lætur unglinga deyja fyrir sig og Saddam borgar, en Arafta er passaður af her lífvarða og fer um í brynvörðum Benz.

En dagar Arafats og Saddams eru taldir, líklega verða hvorugir við völd eftir ár og verður hvorugs saknað að mótherjum eða eigin fólki. Bandaríkjamenn eru áð fá sig fullsadda af þessum svokallaða réttkjörins leiðtoga Palestínumanna, bæði Powell og Rice kalla hann ótraustvekjandi lygara, og þau eru þau hófsömu í stjórninni. Bush er búinn að gefa CIA “licence to kill” á Saddam og eru það gleðifréttir sérstaklega fyrir hans eigið fólk. Einnig er þá von að fækki sjálfsmorðsárásum í Ísrael sem Saddam hvetur til með fjárgjöfum.

En nú eru líklega allir orðnir leiðir á Ísrael-Palestínumálinu í bili, nú er “Falung Gong” málið okkur nærtækara. Enda barara ein sprengjan enn þarna og bara e.h. Ísraelar sem drápust, helst að fólk hafi áhyggjur að verði gert eitthvað við Arafat og enginn Íslendingur hjá honum til að passa hann.