Ég hef nú í þónokkurn tíma verið að fylgjast með þeim umræðum hér um málefni ísraels og Palestínu, og nú síðast þessa mega löngu umræðu sem hófst á kynningu á mótmælendafundi á móti Ariel Sharon (350 svör síðast þegar ég gáði). Fólk er ýmist er annaðhvort með eða á móti Ísrael/Palestínu en einstaka fólk virðist styðja báða aðila. Ég hef sjálfur ekki lagt orð í belg í einni einustu umræðu enn sem komið er vegna þess að mér finnst oftast að búið sé að segja allt sem segja þarf eða að mér fynnst það sem mér var að detta í hug koma of seint inn í umræðuna. Það sem mig langar helst að vita og tilgangurinn með þessari grein er hverjir styðja Ísrael, hverjir Palestínu og hverjir telja sig hlutlausa?

Sjálfum styð ég tilverurétt Palestínu og tel mig ekki þurfa að telja upp rök fyrir því þarsem þau eru búinn að byrtast endalaust oft í öðrum greinum. Ísraelar hafa engan rétt á því að ryðjast inn á Palestínsk landsvæði og brjóta þar niður hús og svipta fólk frelsi og eignum.

Þessu síðasta hérna er beint til náunga sem kallar sig peace4all, hann hefur svo gaman af því að endurtaka aftur og aftur að gyðingar hafi rétt á palestínu vegna trúarrita þeirra. En það eru fleiri klausur í því en bara þetta, t.d. nokkuð sem kallast boðorðin tíu og eru grunnlögin í gyðingdóm.

1. Þú skalt ekki hafa aðra guði en mig.
2. Þú skalt ekki leggja nafn Drottins Guðs þíns við hégóma.
3. Minnstu þess að halda hvíldardaginn heilagan.
4. Heiðra föður þinn og móður þína.
<b>5. Þú skalt ekki morð fremja.</b>
6. Þú skalt ekki drýgja hór.
<b>7. Þú skalt ekki stela.</b>
8. Þú skalt ekki bera ljúgvitni gegn náunga þínum.
<b>9. Þú skalt ekki girnast hús náunga þíns.</b>
<b>10. Þú skalt ekki girnast konu náunga þíns, ekki þræl hans eða ambátt, ekki uxa hans eða asna né nokkuð það sem náungi þinn á.</b>

Ég sé ekki betur en að Ísraelsmenn séu búinir að vera að þverbrjóta boðorð 5, 7, 9 og 10.
5. Þeir eru búinir að vera að drepa bæði menn, konur og börn í þessum árásum sínu og einnig hefur Ariel Sharon þónokkuð mikið af saklausu fólki á samviskunni.
7. Þeir eru búinir að vera stela landi og eignum af Palestínumönnum, langt umfram það sem þeim var úthlutað af sameinuðu þjóðunum.
9. Sama og að ofan, eru búinir að vera að ryðja niður hús palestínumanna og byggja ný fyrir gyðinga, sem mörg eru ekki einu sinni notuð.
10. Fellur nokkurnvegin undir sömu atriði og þetta fyrir ofan.