Guð Hatar Homma samtökin.. Ég var að horfa á athyglisverða heimildarmynd á youtube. Þessi mynd er um sértrúarsöfnuð í Kansas, sem er að stórum hluta sama fjölskyldan. Þessi fjölskylda er jafnan nefnd sem mest hataðasta fjölskyldan í Bandaríkjunum.

Þessi fjölskylda heldur úti vefsíðum eins og: www.godhatesfags.com , www.americaisdoomed.com , www.godhatesamerica.com , www.priestsrapeboys.com .. og fleiri álíka síður.

En í stuttu máli sagt, þá er þetta annars ágæta fólk frægast fyrir það að standa með mótmælaskilti við jarðarfarir hjá hermönnum og hrópa slagorð. Skilti þessi eru jafnan með boðskap sem er ætlað að vera móðgandi fyrir hermenn, homma, lesbíur, ameríku og þig. Það þarf ekki að lesa milli línana þegar það stendur “Þú ert að fara til helvítis!”

Tilvitnun: “we are the evil angels. it's not because we are evil people, it's because we are bringing forth the message of the evil that god has determined upon you”

Þetta er s.s. þeirra trú, að við hin séum öll óvinir guðs og hann muni koma eftir stuttan tíma og ganga frá okkur. Þeim þykir þetta vera beinlínis “kurteisisleg aðvörun”, en á sama tíma þá segist þetta fólk ekki vera að reyna að bjarga okkur frá villu vegar.

Fyrst tilgangurinn er ekki að bjarga neinum er það nokkuð ljóst að með þessum mótmælum eru þau aðeins að hæðast að hinum “fordæmdu”, og tilgangurinn aðeins fyrir þetta fólk að baða sig í sjálfumgleði sinni.

Það er niðurlag þessarar heimildarmyndar að þetta fólk styrkist í trúnni eftir því sem hatur á þeim eykst, því það er víst alveg eins og biblían segir þeim. Þau beinlínis hreykja sér af því að vera hötuð.

Segi ég því: Við skulum ekki hata þetta fólk. Djöfullinn styrkist á hatrinu sem honum er gefið. Við skulum því senda þessu fólki alla okkar samúð og kærleika, líkt og Jésús kristur myndi gera.

Hérna eru svo hlekkir á heimildarmyndina fyrir þá sem hafa áhuga á að sjá hversu djöfulleg bókstafstrú getur verið (hver partur er c.a. 10 mín):

Partur 1 : http://youtube.com/watch?v=2QRyr3_nCF4

Partur 2 : http://youtube.com/watch?v=N2h9NnUoYjw

Partur 3 : http://youtube.com/watch?v=nuKOyzlYx0E

Partur 4 : http://youtube.com/watch?v=N41T53xE0QY

Partur 5 : http://youtube.com/watch?v=U0P9elMQgrc

Partur 6 : http://youtube.com/watch?v=RyPMTr5yMQI



Eins og sést á þessu, þá erum við í stríði. Þetta er stríð trúarskoðana. Þetta er stríð hins góða gegn hinu illa. Kærleikurinn gegn hatrinu. En þetta er svolítið snúið.. Því með því að hata hatarana, þá erum við í raun í vitlausu liði, þó svo okkur gangi gott eitt til.

Við skulum því senda þessu fólki skilaboð og segja þeim að við hötum þau ekki, heldur elskum þau.

Það er hægt að senda skilaboð hérna: http://www.godhatesfags.com/main/contact.html

Ég sendi þeim eftirfarandi skilaboð, sem eru tilvitnun í söguna um týnda soninn:

Subject: “We love you!”

“we dont hate you.. we love you, no matter what!

we will have the best robes ready, a ring on your finger, and sandals on your feets, should you decide to come back into our arms.

god bless!”

Kanski ef þau sjá að það hatar þau enginn lengur, þá hætta þau þessu rugli ?
“Humility is not thinking less of yourself,