Ég sá í blaðinu í dag (12. okt.) að konu hefði verið nauðgað í húsasundi aðfararnótt mánudags af tveimur mönnum og að annar hefði haldið henni fastri. Þvílíkur viðbjóður!

Að sögn í blaðinu var um hrottafengna nauðgun að ræða og konan fannst niðurbrotin og í sárum af lögreglu. Hvernig er hægt að fara svona með fólk?

Mér fannst skelfilegt að lesa þetta og varð því að setja niður þessi orð.

Það sem ég skil ekki er HVERNIG menn geta gert þetta? Hafa menn enga samvisku? Fatta þeir ekki hvernig konunni líður þegar þeir eru að þessu? Nú ganga mennirnir lausir og þeim finnst ábyggilega allt í lagi hvað þeir gerðu og halda áfram lífi sínu dags daglega eins og ekkert hafi gerst. Svona “mannsmorð” á ekki að líðast!

Mikið væri það gott ef þessir menn myndu finnast og að þeir væru dregnir til ábyrgðar og fengju þungan dóm eins og þeir eiga skilið. Þessir menn verða eiginlega bara að finnast!

Ég get ekki með nokkru móti ímyndað mér hvernig konunni líður. Hún mun þurfa að lifa með þessu það sem eftir er ævinnar og það mun hafa áhrif á hennar líf til æviloka það sem gerðist þennan eina dag.

Takk fyrir lesturinn.