Það koma á daginn að ég sat heima hjá mér og beið eftir pakka sem ég pantaði á Ebay á dögunum og var ég að panta varahlut í bíl fyrir litla bróður minn. Sem er svo sem ekkert frásögu færandi nema fyrir það að pakkinn fer inn til Tollmiðlunar og þar er óskað eftir þeim pappírum sem þeir væla alltaf yfir sem er gott og blessað.
En svo líður og bíður og engin kemur pakkinn inn fyrir minn þröskuld.
Kemst svo að því viku síðar þegar kall faðir minn mætir í heimsókn að litli bróðir hafi farið niður í toll og leyst pakkann út án nokkurs vesens eða leyfis frá mér og fer með hann heim.

Ég furðaði mig nokk á þessu þegar ég heyrði þetta og ákvað því að senda póst í framhaldi að því til tollmiðlunar og hljóma þeir orðrétt svnoa:

“Góðan daginn

Mig langar að forvitnast um það hvort að einhver annar aðili en ég sjálfur geti leyst út pakka/sendingu sem stíluð er á mig ?”

Svar barst fljótlega:

“Góðan dag,

já það er hægt.”

og fleiri voru ekki þau orð… þannig að ég sendi til baka hálf hneykslaður:

“En þyrfti ég ekki að gefa leyfir fyrir því að annar aðili nái í pakka sem ég á von á ?? Eða getur Jón Jónsson komið og náð í pakka sem stílaður er á Runólf Proppe án þess að fá gefið leyfir frá Runólfi ?!”

Svarið kom og var eftirfarandi:

“Nei það þarf ekki leyfi.

kv
Tollmiðlun”


Ég vissi ekki hvort ég ætti að hlægja eða gráta! eða hvort ég væri bara að tala við einhvern krakka sem átti ekki að sitja við þessar póstskriftir tollmiðlunar.

En þessi skilaboð segja mér og fleirum að ef t.d. ég veit um pakka sem Davíð Oddson er að fá sendann þá get ég farið niður í Tollmiðlun og sagst vera ná í pakka Davíðs, borgað fyrir tollinn og látið mig hverfa með pakkann… ! Gæti jafnvel borgað með pening þannig að ekki væri hægt að hafa upp á viðkomandi aftur. !

Ef þessi afgreiðsla er ekki asnaskapur ársins, að svona stofnun gefi svona svör og svona afgreiðslu þá veit ég ekki hvað…

En þetta hlítur að vera brot á einhverjum lögum og reglum ( persónuvernd eða hvað það nú allt heitir )

En það geta greinilega allir náð í þá pakka sem þeir vita um án leyfis, án þess að vera viðkomandi og það mun engin andmæla því greinilega !..

Hvað segið þið um þetta gott fólk !