Manni verður spurn eftir að hlusta á fréttir í kvöld þar sem er talaðu um að Ísraelar hafi skipað fólki að hafa sig á brott áður en þeir eyði þeim með sprengjuregni í yfirvofandi stórárásum, það er ekkert sparað í orðalaginu.

Nú þegar Ísraelar eru fordæmdir þá er vert að minnast þess þegar Jórdanar kæfðu uppreisn PLO þar sem þeir drápu þúsundir Palestínumanna, en þeir ætluðu að ræna völdum þar. Þetta vita eða muna fáir enda er það þannig að Arabíska áróðurspressan vill ekki fjalla um það þegar þeir eru að drepa hvern annan, bara ef Ísraelar eru að drepa þá, því þeir eru sérfræðingar í að “mjólka” samúð frá vinstrisinnuðum kerlingum á vesturlöndum, kerlingum af báðum kynjum !

Í fréttum RÚV í kvöld var varla minnst á Hizbollah þó að þeir hafi skotið yfir 60 eldflaugum á Ísrael í dag og það var auðvitað ekki minnst á nein Ísraelsk fórnarlömb, fer Ísland-Palestina yfir fréttirnar þarna áður en þær eru lesnar ?

Raunveruleikinn þarna er ekki skýrður fyrir fólki; Líbanon á að heita sjálfstætt ríki en er ekki að fúnkera, aðallega af því að þessi hryðjuverkasamtök Hizbollah (afsprengi Íranskrar utanríkisstefnu) hafa fengið að koma sér fyrir með eldflaugar í suður Líbanaon. SÞ hefur áliktað að þessi samtök og önnur skuli afvopnuð svo þau hætti að ógna Ísrael, en ekkert gerist af því að Líbanonstjórn er lömuð og svo fer sem fer. Það var ráðist á Ísrael frá Líbanon og þar með verður Líbanon að taka afleiðingunum ef þeir líða að hryðuverkasamtök komi sér fyrir og stundi árásir af þeirra landi.