Hvað er eiginlega að íslenskum fjölmiðlum? Fylgja þeir málfutningi Ísaela gagnrýnislaust og í blindni gegn Palestínumönnum?
Það væri hægt að nefna mýmörg dæmi um það sem virðist afdráttarlaus undirgefni íslendinga og fjölmiðla hér gagnvart Ísrael.
Nýlegt dæmi:
Ísraelar gera árás á búðir Palestiníumanna og 8 féllu. Þetta var kölluð aftaka í fréttum á Íslandi og sennilega barst sú frétt frá Ísraelum sjálfum og birt umhugsunarlaust. Afstaða Palestiníu var ekki tekin með í fréttinni!
Varðandi fréttina: Ísrelar voru að HEFNA árásar araba þar sem 2 féllu. En í fréttinni féllu þessir 2 ekki, þeir voru MYRTIR!
Aðgerðir og árásir Ísrela eru í fréttum kallaðar hend eða fyrirbyggjandi aðgerðir. Samskonar aðgerðir araba eru kallaðar hryðjuverk! Palestínskst barn kastaði grjóti í strætisvagn. Því er svarað með skothríð, barnið féll. Fréttin af atburðinum var á þessa leið: Hermaðurinn brást við tilraun til hryðjuverks og kom í veg fyrir það með snarræði sínu!! Sharon stefnir leynt og ljóst að stríði við Palestiníu, ef það sem nú er að gerast eru kallaðir árekstrar og pústrar hvað skeður þegar það heitir stríð!
Hefur heimurinn virkilega þvílíkt samviskubit yfir helför gyðinga í seinni heimstyrjöld að hann sé tilbúinn að líta undan og látast ekki sjá hvað þeir eru að gera í Palestínu? Útrýmingarherferðin á hendur gyðingum er vissulega hræðilegur blettur á sögunni, en ekki verður annað séð en að við séum að leyfa þeim að gera nákvæmlega það sama gegn aröbum. Eiga arabar að greiða kostnaðinn við helförina. Ekki verður annað séð. Úr því að Bandaríkjamenn styðja við bakið á Ísrael þá gerum við það líka, í blindni, því við erum í hópi þeirra þjóða sem sjá um að halda rassgatinu á USA hreinu, hvað sem það kostar!