Hann Bush kallinn! Af hverju kusu Bandaríkjamenn Bush? Þennan Texas kall. Hann er á móti flestum framförum og virðist vera einstaklega heimskur! Hann er á móti fóstureyðingum og því að samkynhneigt fólk gifti sig og hvað þá að það ættleiði börn! Hann er hinsvegar mjög með því að sprengja öll önnur lönd en þennan grjóthnullung sem hann situr á!
Hann er nú þegar á þessum stutta tíma sínum sem forseti þessa lands búin að fá Bandaríkjamenn inn í milliríkjadeilu við Kína, af því að hann gat ekki beðist afsökunar á því að fljúga á þotuna þeirra! Einstaklega nálægt flughelgismörkum þeirra! Honum og öllum Bandaríkjamönnum virðist alveg sama! Og ekki nóg með það, hann hættir ekki, nú þegar í milliríkjadeilu gerir hann tvo aðra hluti til að gera Kínverja fúla, hleypa einhverjum gaur (afsaka hvað ég veit lítið um málið) inn í landið sem virtist eitthvað bögga Kínverjana og svo núna segist hann fara í stríð við Kínverja ef þeir ráðist á Tævan, ég er ekkert á móti því að styðja Tævan, en þeir gátu valið betri tímasetningu… Þeir vita að aðrar þjóðir líta upp til þeirra. Það fer enginn að setja viðskiptabann á Bandaríkin! Það væri nú bara vitleysa!
En eitthvað verðum við að gera! Það þýðir ekki að þeir, sem menga mest af öllum þjóðum heims, eru með þeim ríkustu, dragi sig út úr kyoto-samkomulaginu útaf “lélegri afkomu fyrirtækja” Hvað þykjast þeira vera segi ég enn einu sinni! Það er ekkert fremra við þá! Jæja, nú er ég búin að blaðra á mig gat… Ég vona bara að einhver þarna úti sé sammála mér og kannski getum við, þessi litla
þjóð úti í Atlantshafinu gert eitthvað í þessu!
Just ask yourself: WWCD!