Hafiði séð nýju auglýsinguna fyrir drykkinn Faxe Kondi? Það er skopstæling af Sprite auglýsingunni. Mjög góð skopstæling ef að þið spyrjið mig.
Sprite auglýsingin hefur mér alltaf fundist vera að gera lítið úr fólki, þú getur ekki verið allt sem að þú vilt vera eru skilaboðin sem að ég fæ frá Sprite auglýsinguni. Því var um að gera fyrir Faxe Kondi að nýta sér þessi skilaboð sem að Sprite er að að senda sér til hagsbóta. “Þú getur verið það sem þú vilt vera - Faxe kondi” Snilldarsetning!!!

Nú hef ég ekki prófað drykkinn en þá en ég á pottþétt eftir að gera það. Auglýsingin selur mér drykkinn. Allavega einusinni, ef hann er góður þá kaupi ég aftur.

Hvernig verða viðbrögðin hjá Vífilfell við þessari auglýsingu? Getur Vífilfell gert eitthvað án þess að líta út eins og Golíat að ráðast á Davíð?

Hvað finnst ykkur?

Xavie