Það var að fréttast af áhuga MTV að halda MTV Europe awards 2006 á Íslandi. Þetta tel ég vera frábært fyrir Ísland því þá koma allar stjörnurnar ásamt grúppíum fréttamönnum og fullt af öðru fólki. Líklegasti staðurinn fyrir hátíðina er Egilshöll í Grafarvogi. Ég hef séð þessar hátíðir í sjónvarpinu og það er þvílíkt stuð allar stjörnurnar og fullt af góðri tónlist. Búist er við tveggja milljóna veltu af þessarri hátíð. Að sögn fréttablaðsins hafa tónleikahaldarar, framleiðslufyrirtæki, auglysingarstofur og fleiri aðillar unnið að þessu í nokkra mánuði. Fréttablaðið segir einnig frá því að það sé von á fólki frá MTV til að kanna aðstæður á næstu vikum. Þá er stefnt að því að leigja skemmtiferðarskip undir fjölda tónlistarmanna, blaðamanna og annarra gesta. Svo það sem við megum búast við er allt fræga fólkið, hellingur af fréttamönnum, fullt af fólki sem horfir á og vonandi mikinn pening.