Ég var um daginn að skoða síðu með vini mínum… hann sagði mér að hann hafi frétt af síðu íslenskra þjóðernissinna og vafasömu efni sem við fundum þar.

Við fórum á hana og lásum þarna allt efni… mér til mikils hryllings fattaði ég hvað fólk gæti lagst lágt. Þarna sá ég ýmist vafasamt efni sem ég ætla núna að fara yfir og rökræða og leiðrétta… bendi á að flest efni er tekið af síðu FÍÞ http://notendur.centrum.is/~fith/

Byrja ég á því að taka dæmi úr stefnuskrá FÍÞ

FÍÞ: 1. Að hindra frekara landnám útlendinga af öðrum
en evrópskum uppruna hér á landi.

Svar: Þarna er verið að segja að fólk frá öðrum löndum en Evrópu sé eitthvað verra en fólk í ev´rópu.

FÍÞ: 2. Að koma í veg fyrir erlend afskipti af íslenskum innanríkismálum.

Svar: Erlend afskipti eru bara sum ágæt, ef ekki væri fyrir þau þá værum við ennþá fátækt lítið land sem hefði held ég ekkert lýðræði.

FÍÞ: 6. Að íslenskt vinnuafl hafi forgang fram yfir erlent vinnuafl.

Svar: íslenskt vinnuafl er ekkert endilega betra held ég, þótt íslendingar hafi kannski meiri reynslu á því að vinna á íslandi.

Nú tek ég önnur dæmi af síðu FÍÞ

FÍÞ: Kári Stefánsson er einn þeirra manna sem m.a. hefur gert sér grein fyrir sérstöðu þessarar þjóðar og sífellt birtast fréttir af því hversu gott sé að gera erfðarannsóknir á Íslandi vegna þessarar sérstöðu þjóðarinnar. Við erum svo hrein og ómenguð að unun er að vinna við rannsóknir á einstöku erfðaefni okkar. Þessar fréttir flytja okkur fréttamenn sem geta ekki falið stoltið í röddinni. Þeir eru stoltir, við erum stolt og eigum að vera það!

Svar: Bíddu erum við hrein og ómenguð.. er annað fólk mengað, ég held að það sé varla hægt að segja það.

FÍÞ: Það að vera stoltur af því að vera Íslendingur og það hvítur, þykir ekki lengur gott, þaðer ljótt.
Að vísu þykir ekkert óeðlilegt við það að fólk af afrískum uppruna þrammi um jörðina í beltislausum buxum og hrópi hvað það sé stolt af því að vera frá Afríku og hvað hvíti maðurinn sé vondur við það. Þeir hafa samúð allra og þeir sem ekki vorkenna þeim neitt sérstaklega eru umsvifalaust stimplaðir sem fúlmenni og nasistar. (mér þykir rétt að benda á að nasistar eru minnihlutahópur hér á landi og ber því væntanlega að koma vel fram við þá!)

Svar: Er allt fólk af afrískum uppruna í beltislausum buxum?
þrammar um jörðina, ég vil líka benda á það að það er ok að vera stoltur af því að vera íslendingur en það að vera íslendingur gefur manni ekki réttinn á því að koma með alhæfingar um fólk af afrískum uppruna… svo er líka sagt að við ættum að koma vel fram við nasista.. bíddu komu nasistar vel fram við gyðinga og annað minnihluta fólk á dögum seinni heimstyrjualdarinnar?

FÍÞ: Það er vegna þessa sem við vitum að sambúð ólíkra kynþátta gengur ekki upp. Ekki líður sá dagur að maður heyri ekki fréttir af óeirðum, sprengjutilræðum og hvers kyns ódæðisverkum. Þessi ódæðisverk eru oftar en ekki framin vegna deilna milli kynþátta eða hópa sem túlka kristna trú á misjafnan hátt. Og hvernig er þá hægt að ætlast til að fólk af jafn ólíkum uppruna og býr nú hér á Íslandi, geti gert það um aldur og ævi án þessað til átaka komi?
Og fyrir ykkur sem lesið þetta og eruð ekki sammála, vil ég árétta að það eru ekki bara hvítir menn sem geta hatast út í aðra kynþætti!

Svar: Ok segjum sem svo að við myndum skipta löndum upp eftir trúariðkun og þjóðbrotum, hver þjóð fengi sitt svæði og fólk frá hinum þjóðarbrotunum fengi ekki að koma inná þeirra svæði… það myndi bara auka fordóma gegn hvort öðru. Það var einmitt þannig sem síðari heimstyrjuöldin byrjaði en þannig voru einmitt næstum gyðingum útrýmt gæti ég sagt.

Þetta er allt sem ég ætla að fara yfir í þessari grein, en ein ástæðan fyrir því að ég skrifaði þetta er það að eitthvað fólk fari á þessa síðu og síkist af þeirra stefnuskrá… segjum sem svo að 10 ára strákur fari á þesa síðu, lesi allt sem er á henni… hvernig haldiði að hann taki það út á útlendingum í skólanum sínum?

Snoothe
Snoother