Mótmælin eru rétt að byrja Í ljósi hinna gífurlega miklu þáttöku á <a href="http://www.quake.is/motmaeli“>undirskriftalistanum</a> gegn hækkun á óskrifuðum geisladiskum er nú þörf á að taka mótmælin á næsta stig.

Upp hafa komið hugmyndir um að mæta í Menntamálaráðuneytið næstkomandi föstudag kl. 15, ef kostur er og hafa meðferðis útprentun á listanum og afhenda ráðherra hann ef að hann þorir að mæta. En þessar hugmyndir eru eingöngu á frumstigi eins og er.

Einnig þarf að hugsa um framtíðina og möguleika þess að þessi reglugerð verði felld niður, en því miður eru ekki mjög miklar líkur á því nema að okkur takist að sannfæra aðra stjórnmálamenn að taka upp málstaðinn og beita ráðherra þrýstingi.

Mér verður oft hugsað til Daviðs Oddsonar, sem hefur áður ”slegið á fingur“ ráðherra þegar að óvinsælar hækkanir koma til framkvæmda og er það ósk mín að hann vakni upp af blundinum og hamri duglega á fingrum Björns. Einnig væri nú gott ef að stjórnarandstaðan myndi nota eitthvað af þeim nöldurshæfileikum sem hún á í svo miklu magni (eins og varðandi ”öryrkjafrumvarpið") og mótmæli þessum skatti á upplýsingatæknina.

Endilega komið með ykkar hugmyndir um aðgerðir (reynið að hafa þær skynsamar) og stöndum föst gegn þessum hækkunum.

Björn Bjarnarson pereat!
JReykdal