Hvað er eiginlega að gerast með fólk á þessu landi! Það er ekki sýnt virðing fyrir neinu.
Ég var niðri í bæ í dag þegar þingsetningin fór fram og ákvað að horfa á svona að gamni.
Það voru einhverjir mótmælendur þar eins og mátti við búast, en hvernig ætla þessir mótmælendur að reyna láta fólk hlýða á boðskap sinn ef þeir láta eins og smábörn.

Þetta byrjaði þegar heiðursvörður lögreglunnar kom gangandi sína virðingargöngu úr templarasundi og að Alþingi. Þegar heiðursvörðurinn kom að Alþingi fóru mótmælendur að hlægja óstjórnlega af þessari glæsisýningu lögreglunnar okkar…
Heldur fólk að það hjálpi málstað þeirra að vera að hlægja af þessu fólki sem heldur uppi lögum og reglum hérna og er í sínu fínasta pússi til þess að sýna Alþingi og þjóðinni virðingu!

Síðan þegar alþingismenn fóru að koma í Alþingi byrjuðu frammíköllin og það allt saman. “stöðvið þrælahald” og álíka, allt einhverjir 18-20 ára menntskælingar að reyna að vekja athygli á sér.

Hvernig væri nú að takmarka mótmælin við spjöld og borða en ekki vera að eyðileggja þessa athöfn fyrir öllum hinum með barnalegum öskrum og látum. Þið fáið ekki stuðning með þessu þið fáið bara óvild.

Takk fyri