Í dag er tilboð á mannslífum. Tilboðið er þannig að þú bara tekur sirka eitt líf og situr svo inni í 2 til 3 ár ef þú á annað borð næst! Þetta er ekkert grín heldur staðreynd! Mikið er gott að þetta fólk sem stendur á bak við þetta var að fá tæp 20% launahækkun! Í dag er miklu meiri glæpur að stela stapla af pappír heldur enn að taka líf annars. Svo að það sé ekki minnst á nauðganir, ef þú nauðgar einhverjum þá eru líkurnar á að þú verðir dæmdur undir 10%=90% líkur á að sleppa. Ég væri til í að fá þær líkur í lottó! Það er bókað að gjaldkeri símanns fær lengri dóm en strákarnir sem drápur unga manninn niðri í bæ. 2 ár fékk sá sem sparkaði í andlitið á honum og sennilega kláraði hann. Hann fékk bara 2ár útaf því að það var ekki vilji fyrir því að drepa manninn, því að þegar maður sparkar ítrekað í hausinn á liggjandi manni þá vill maður ekki meiða hann, er það nokkuð? Hann fékk 2ár á litlahrauni enn útaf því að hann grét svo mikið í fangelsinu þá fékk hann að fara frekar á hvíabryggju, þar sem hann er í góðu atlæti og fær mjög rúmar heimsóknir og fær þar að auki helgarpassa ítrekað! Hinn fékk 3ár þótt að hann sé búinn að höfuðkúpubrjóta fleiri enn einn og fleiri enn tvo. Hann vildi sko ekki meiða neinn! Hann þurfti bara að senda forsetanum bréf um að ofbeldi væri slæmt! Hann ætti nú að vita það hann er búinn að vera einn sterkasti iðkandinn hér á landi síðustu ár! Ótrúlegt kjaftæði! Mér finnst þetta mjög slæm þróunn!
Bið afsökunar á stafsetningarvillum!