Ég fór nýlega á Daredevil þar sem Ben Affleck er í aðalhlutverki sem blindur “ofurhugi”. Hann missir sjónina og eigilega á sama tíma pabba sinn líka 12 ára gamall. Ég hélt að þetta væri bara svona wannabe batman og superman mynd en svo var alls ekki því þessi var betri en þær myndir. Ég mun pottþét skella mér á einn DVD disk með þessari mynd þegar hún kemur út því ég veit að ég gæti hoft á þessa mynd lengi vel.. Og ég skora á ykkur að fara á viedo leigur landsins og sjá hvernig myndin er, ef það eru einhverjir sem eiga eftir að sjá hana. Svo er það samband Jennifer Lopez og Ben Affleck sem er búið að tala mikið um í fallega og fræga fólks heiminum. Ben kom nýlega fram í þættinum með Jay Leno með syrpu sem sást hvað Jay gerði mikið grín eða kannski ekki grín en talaði allavega mikið um sambandið, því hann hafði allavega náð að klippa saman að minnsta kosti tíu svipbrigði þar sem Leno er að tala um það par. Svipurinn á Jay Leno var ekkert alltof góðlegur þegar klippan hafði verið sýnd en auðvitað getur hann gert grín af sjálfum sér eins og öðrum.

Ég skora á alla að kíkja á myndina Daredevil eins og hefur áður komið fram í greininni og þakka um leið fyrir mig..

..::ExZibit::..