Olíustríð í Íslands nafni ! ? ! ? ! Nú er þetta eitt mesta fyrirsjáanlega stríð í sögu mannkyns hafið og hafa þessir síðastliðnir mánuðir verið stútfullir af umræðuefni í fréttunum og unga kynslóðin hefur gert mikið út úr því að gera grín af George W. Bush BNA forseta.
En nú hefst alvaran, þetta er ekki lengur umræða um nýjasta heimskupar hins umdeilda forseta heldur stríð sem mun taka líf margra óbreittra borgara og mikilla skemmdaverka á byggingar í Írak svo sem skólum, spítölum og fyrirtækjum, svo fátt sé nefnt.

Ég veit að Saddam Hussein er vondur maður, sem verður að vera steypt af stóli, en afhverju núna ? Hann hefur ekkert gert til að stugga við BNA-,önnum eftir að hann rak vopnaeftirlitsmenn SÞ úr landi fyrir þó nokkrum árum. En Kim jong Il, einræðis N-Kóreu hefur haldið uppi hótunum frá því hann komst til valda

Munu BNA-menn blóðmjólka olíulindir Íraka, sem þeir leggja svo mikla áherslu á að þurfi að hlífa þrá þessum átökum ? Munu þeir láta við staðið hér, eða halda áfram inn í næsta land ? Verður þetta stríð bara til þess að auka hryðjuverk um heim allan ?

Þetta eru spurningar sem mér finnst að þurfi að íhuga áður en lagt er af stað í þessa \“krossferð\” BNA, sem er auk þess stíluð meðal annars á Ísland !!!!!!

Ég er ekki tilbúinn að taka á mig sök fyrir dauða lítilla barna í þessum stríðsátökum, þó Dabbi kóngur og félagar séu það.

Þessi grein hefur engan tilgang, nema þann að veka umhugsun um hvað við Íslendingar vorum að stíla á okkur og þessa \“hetjulegu krossferð\” BNA-manna og Breta.

Mín persónulega skoðun er að þverneita fyrir það að eiga í eithvern hlut að stríðinu, að uppbyggingu og hjálparstarfi undanskildu.
“Öreigar allra landa sameinist !!!!!!!”