Aldrei þessu vant horfði ég á þennan sorglega þátt (hafði heyrt um að Ringo Starr ætti að vera gestur þannig að ég gat ekki sleppt þessu). Það var mjög gaman að sjá Ringo í þættinum en hinn gesturinn (Bill O'Reily held ég að hann hafi heitið)…………


VÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁ, er hægt að vera heimskari??? Þarna lýsti hann því yfir að allir ættu að sniðganga franskar vörur, og að það væri fáránlegt að ríki eins og Pakistan, Kamerún og FRAKKLAND höfðu “örlög okkar frábæru þjóðar” í sínum höndum. Og þakið ætlaði gjörsamlega að rifna af húsinu. Og eins og það væri ekki nóg, þá sagði hann að Frakkar hötuðu BNA, m.a. vegna þess að BNA væru svo frábær og tókst allt svo frábærlega. Svo lýsti hann því yfir að Frakkar ættu að vera þakklátir BNA því að án þeirra væru þeir nú að tala þýsku.



HALLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLÓ, vita þessi heiladauðu himpingimpi ekki að það er Frökkum að þakka að þessi guðsvolaða þjóð varð til? Án aðstoðar Frakka hefðu nýlendubúarnir ALDREI unnið her Breta, en með hjálp Frakka tókst þeim það.




Ég held að þeir ættu nú aðeins að hugsa um það hverjir ættu að vera þakklátir hverjum………..