Gleymt lykilorð
Nýskráning
Dægurmál

Ofurhugar

gmaria gmaria 1.462 stig
ritter ritter 1.390 stig
idf idf 1.228 stig
skuggi85 skuggi85 802 stig
enss1o enss1o 562 stig
appel appel 516 stig
Socialist Socialist 402 stig

Alþingi (0 álit)

Alþingi Einar Kristinn Guðfinnsson

Alþingi (0 álit)

Alþingi Hér er Össur Skarphéðinsson þessi merkis maður mættur í sínu fínustu fötum.

Alþingi (0 álit)

Alþingi Ferill Guðna…..
F. á Brúnastöðum í Hraungerðishreppi 9. apríl 1949. For.: Ágúst Þorvaldsson (f. 1. ágúst 1907, d. 12. nóv. 1986) alþm. og bóndi, móðurbróðir Guðjóns Guðmundssonar alþm., og k. h. Ingveldur Ástgeirsdóttir (f. 15. mars 1920, d. 6. ágúst 1989) húsmóðir. K. (2. júní 1973) Margrét Hauksdóttir (f. 3. apríl 1955) leiðbeinandi. For.: Haukur Gíslason og k. h. Sigurbjörg Geirsdóttir. Dætur: Brynja (1973), Agnes (1976), Sigurbjörg (1984).Búfræðipróf Hvanneyri 1968.Mjólkureftirlitsmaður hjá Mjólkurbúi Flóamanna 1976-1987. Skip. 28. maí 1999 landbúnaðarráðherra.
Formaður Umf. Baldurs í Hraungerðishreppi 1969-1974. Formaður FUF í Árnessýslu 1972-1975. Formaður kjördæmissambands framsóknarfélaganna á Suðurlandi 1979-1986. Formaður SUF 1980-1982. Í stjórn Hollustuverndar ríkisins 1982-1986. Í bankaráði Búnaðarbanka Íslands síðan 1990, formaður 1990-1993. Í stjórn Stofnlánadeildar landbúnaðarins 1990-1997, formaður 1990-1993. Formaður stjórnar Lánasjóðs landbúnaðarins 1998-1999. Í fulltrúaráði Sólheima í Grímsnesi 1990-1994. Í Þingvallanefnd síðan 1995.

Alþm. Suðurl. síðan 1987 (Framsfl.).
Vþm. Suðurl. nóv. 1986. 2. varaforseti Sþ. 1989-1990. Landbúnaðarráðherra síðan 1999.
3. varaforseti Alþingis 1995-1999.
Þingnefndir: Samgöngunefnd 1991-1995, landbúnaðarnefnd 1991-1999 (form. 1995-1999), heilbrigðis- og trygginganefnd 1995-1999, sérnefnd um stjórnarskrármál 1995-1996.

Alþingi (0 álit)

Alþingi Tómas Ingi Olrich formaður Íslandsdeildar NATO-þingsins.

Deiglan (0 álit)

Deiglan Það er ekki skrýtið að það gangi illa að semja við þennan mann ef áhuginn hjá honum er svona mikill :)

Alþingi (0 álit)

Alþingi Stúdentspróf MR 1970. Lögfræðipróf HÍ 1976.
Skrifstofustjóri Leikfélags Reykjavíkur 1970-1972. Þingfréttaritari Morgunblaðsins 1973-1974. Starfsmaður Almenna bókafélagsins 1975. Skrifstofustjóri Sjúkrasamlags Reykjavíkur 1976-1978 og framkvæmdastjóri þess 1978-1982. Borgarstjóri í Reykjavík 1982-1991. Skip. 30. apríl 1991 forsætisráðherra, lausn 18. apríl 1995, en gegndi störfum til 23. apríl. Skip. 23. apríl 1995 forsætisráðherra, lausn 28. maí 1999. Fór jafnframt með dóms- og kirkjumálaráðuneytið og sjávarútvegsráðuneytið frá 11. til 28. maí 1999. Skip. 28. maí 1999 forsætisráðherra.
Í stjórn Stúdentafélags Háskóla Íslands 1970-1973, formaður 1973. Í stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna 1973-1975. Í stjórn Varðbergs, félags ungra áhugamanna um vestræna samvinnu 1973-1977. Formaður Æskulýðsráðs Reykjavíkur 1974-1978 og í fræðsluráði Reykjavíkur 1974-1982. Í stjórn Kjarvalsstaða 1974-1982, varaformaður 1974-1978. Í stjórn Almenna bókafélagsins 1975-1989. Í borgarstjórn Reykjavíkur 1974-1994. Í borgarráði 1980-1991, formaður þess 1982-1991. Í byggingarnefnd Borgarleikhússins 1975-1979 og formaður nefndarinnar frá 1982 til starfsloka hennar. Formaður framkvæmdastjórnar listahátíðar í Reykjavík 1976-1978. Í framkvæmdaráði Reykjavíkurborgar 1979-1982. Formaður stjórnar Síldar- og fiskimjölsverksmiðjunnar Kletts 1986-1988. Í stjórn Landsvirkjunar 1983-1991. Formaður dómnefndar um samkeppni vegna byggingar ráðhúss í Reykjavík. Í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins frá 1979. Varaformaður Sjálfstæðisflokksins 1989-1991, formaður hans frá 1991.

Alþm. Reykv. síðan 1991 (Sjálfstfl.).
Forsætisráðherra síðan 1991.

Hefur samið þrjú leikrit fyrir sjónvarp og með öðrum tvö verk fyrir Leikfélag Reykjavíkur og Þjóðleikhúsið og hafði umsjón með fjölmörgum útvarpsþáttum fyrir Ríkisútvarpið 1968-1975. Gaf út smásagnasafnið Nokkrir góðir dagar án Guðnýjar, árið 1997.
Ótrúlegur ferill.

Deiglan (1 álit)

Deiglan stig

Deiglan (0 álit)

Deiglan Harry Lee Anstead dómari og David Boies lögfræðingur Al Gore.

Deiglan (0 álit)

Deiglan George W Bush, sem segist hafa hætt að drekka '86

Alþingi (0 álit)

Alþingi Þann 27. júní 1996 tóku í gildi lög um staðfesta samvist og var það mikið framfaraskref í mannréttindabaráttu samkynhneigðra. Í umræðum á Alþingi kom upp sú undarlega staða að stjórnarliði talaði gegn frumvarpinu og var síðan gagnrýndur jafnt af stjórnarandstöðunni og stjórnarliðum. Frumvarpið var samþykkt með einu mótatkvæði. Á myndinni sést Vigdís Finnbogadóttir samfagna samkynhneigðu pari á þessum degi framfara.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok