Jason Manley, sá sem á m.a. heiðurinn af portraitunum í Icewind Dale, hefur ákveðið að segja skilið við Black Isle Studios fyrir fullt og allt. Hann ætlar að flytja sig um set og segir að það fyrirtæki sem ráði hann geri bara RPG leiki, svipað og Black Isle Studios.

Hann nefndi ekki mikið annað, nema það að við myndum hafa gaman af uppkomandi titlum Black Isle Studios (einn þeirra á að vera tilkynntur bráðlega).