Gothic 3 Myndin er tekin í Gothic 3, einum af mínum uppáhalds tölvuleikjum (þar á undan Baldur's Gate).
Mér fannst vanta mynd úr honum hingað, þar sem þetta er þrusugóður leikur sem býður uppá marga möguleika.
Grafíkin finnst mér alveg vinna Oblivion, þar sem mér finnst hún miklu skemmtilegri, og fantasíulegri.
Þessi leikur er hinsvegar mjög bug-aður sem ég var reyndar mjög fljótur að venjast.
Helstu kostir að mínu mati: Leikurinn inniheldur persónulegri persónur, flotta grafík,
stórkostlega tónlist, flott landslag, góðann söguþráð og stemningu.
Hvet alla þá sem eru með góða tölvu að spila þennann leik(hann er gríðarlega þungur fyrir tölvuna).