Ég er loksins að setja up Oblivion. Búinn að eiga hann heillengi en aldrei tekið upp á því að spila hann.

Ég er búinn að vera að leita mér að upplýsingum um addon og er búinn að ná í MartsMonsterMod, OOO, Fransesco's Leveled items/creatures og Fransescos Optional Items/Creatures.

Það sem ég er að fiska eftir hérna er hvort að vanari Oblivion spilarar geti bent mér á fleiri góð mod og stýrt mér frá vandræðum sem ég gæti lent í með því að keyra þessi 4 ofangreindu mod saman.

Ég á líka Shivering Isles og Knight's of the Nine og er með það uppsett.