Ég ákvað að installa Oblivion aftur vegna mikillar og skyndilegrar löngunar í að spila CRP-leik og ákvað að patcha hann upp. Ég fór að leita að pötchum og fanna strax þennan hér, sem virðist vera sá nýjasti (1.2.0416).
En það sem er að angra mig er að það kemur hvergi fram hvort ég þurfi að setja inn hina (eldri) patchana áður en ég set þennan upp.

Ég var því að velta fyrir mér hvort einhver hér á huga búi yfir þeirri þekkingu, sem ég leitast eftir, hvort ég þurfi eldri patcha áður en ég set þennan inn.
/Kv. Snjólfurinn