Eins og margir hafa séð þá hef ég sett inn könnun um hvort breyta eigi þessu áhugamáli yfir í Neverwinter Nights áhugamál. Ég mundi vilja fá svar ykkar og ef þið svarið þá vil ég fá <b>rökstuðning</b> við ákvörðun ykkar.

Persónulega vill ég sjá þetta áhugamál sem Neverwinter Nights áhugamál þar sem að það koma ekki fleiri Baldur's Gate leikir út NOKKURN TÍMANN og þar sem að Neverwinter Nights býður upp á bókstaflega óteljandi möguleika þá mun það geta haldist á lofti lengur en önnur áhugamál.

Munið, það eina sem að breytist hér er liturinn (hafa hann svona dekkri í yfirlitum til þess að minna á nóttina:), headerinn og nafnið ef út í þetta er farið (sem ég efast alls ekki um). Allt annað viðhelst.<br><br>Villi

————————

<i>“Félag Íslenskra Þjóðernissinna = ROFL!”</i>

- Vilhelm