Veit einhver hvort það virkar eitthvað öðru vísi hvernig maður fær hit points með multiclass kall?
Byrjaði aftur (svona í 100. skipti) á BG í gær með Fighter/Mage/Thief og ætla að reyna að ná sem hæstum HP (ásamt öðru) í gegnum leikinn. En þegar hann fékk fyrsta Thief levelið sitt þá fæ ég bara 2HP, sama hversu oft ég reyni (á quicksafe áður en ég geri LevelUp).
Kallinn er með 17 í Con og sem þjófur ætti hann að fá d4 HP sem gera 2-5 hp per level?
Eða, eru svipaðar reglur um multiclass og dual class (1HP + Con bónus þangað til fyrri class-inn verður activur)? Finn ekkert um þetta í bókunum sem fylgja með leiknum.