Hefur einhver lent í því í Oblivion að þegar þið farið út úr bæjum ogt kastölum og úr eða inn í hús þá dettur allur hraði í leiknum niður í nánast ekki neitt og eina sem ég get gert til þess að redda því er að fara úr leiknum yfir í menuið og svo loda þaðan.

Hér eru speccarnir

ATI RAdeon X1600
Intel core duo 2 Ghz
1.5 GB minni

Þetta er reyndar 20" iMac sem ég er að nota og ræsi windows með BootCamp en windows hefur spilað allt á fullkomnum hraða án alls vesens og ég hef lesið á netinu að fólk hefur lent í svipuðu en ég hef reynt nokkur úræði en ekki fundið neitt sem virkar.

Veit einhver um lausn á þessu eða þarf maður bara að bíða eftir uppfærslu?