Já ég veit ekki hvar ég átti að setja þetta en komst að þeirri niðurstöðu að þessi leikur væri, tja, rpg og ekki rpg, en eg mæli samt með honum. Freelancer heitir hann og gerist í framtíðinni.

Ég rakst á hann á stóra geisladikamarkaðnum og fanns lýsingin áhugaverð og keypti mer hann.

Þetta fjallar um þig, Trent, og stöðin sem þú vinnur á er sprengd og það voru ekki þessir every day bandits sem gerðu það. Heldur eitthvað annað og meira sem leikurinn gengur nokkurn veginn utá að finna út hvað er. En þú getur fengið störf utan við aðal questið og keypt þer betri geimskip og betri búnað utan á það.

Þessi leikur er ekki i bestu gæðum i heimi en þetta er samt frábær leikur og eg mæli eindregið með honum.

Takk fyrir mig