Ég var að gera þriðja questið í DB og fyrir þá sem ekki eru komnir lengra þá verður væntanlega spoiler (þó svo að það séu sennilega voða fáir).

*SPOILER*
Jæja, ég var að gera questið með að drepa fangann. Maður fær bónus fyrir að drepa engann fangavörð, þar sem gaurinn sagði mér að drepa engann fangavörð. Allt í lagi, np segi ég nú bara. Ég fer inn í ræsið þar sem maður kom út í byrjun og við mér blasir krabbi. Allt í lagi, gaurinn sagði: "Ekki drepa fangaverðina“ svo ég geri ráð fyrir að ég megi drepa rottur og krabba. Ég drepa allar rotturnar og alla krabbana sem ég sé, síðan kem ég að fanagvörðunum og save-a. Eftir nokkrar tilraunir kemst ég í gamla klefann og hurðin er ólæst. Gaurinn sem ég á að drepa er að tala við fangavörð og ég bíð eftir að hann fari. Þegar fangavörðurinn fer tek ég upp boga, er í sneak mode og fæ þar af leiðandi 3x bónusinn (er í novice í sneak) og gaurinn er dauður. Ég hleyp inn í ræsið og kemst sömu leið aftur út án þessa að drepa fangaverðina.
Ég fer í mappið og travel-a upp í east gate í Ceydinhal, fer niður í DB og tala við Vicente en hann segir ”Fórnarlambið er dautt, vel gert. En afhverju þetta blóðbað? Því miður færðu engin verðlaun." Fokk hvað ég varð pirraður. Hann sagði mér að drepa enga fangaverði, hann sagði ekkert um helvítis rotturnar né krabbana!

Vildi bara nöldra aðeins og spyrja, hver voru verðlaunin?
/Kv. Snjólfurinn