Ég er einn af þeim 80% sem völdu að taka Sarevok með mér í byrjuninni í ToB.
Þó að það sé líklega áhættusamt (ég er nýbyrjaður) þá kitlaði það nú hégómagirndina nokkuð mikið að láta þann sem ég sigraði svo eftirminnilega í BG1 sverja mér hollustueið! Ég tók hann inn þótt að hann sé alveg á skjön við hópinn minn (Neutral eða Good), svo að ég er að spá í að láta hann bara fara, ætti ég að láta verð af því?