Sælt veri fólkið.
Ég er ekki virkur inná þessu áhugamáli en ég kíki hingað við og við til að sjá flott skjáskot úr flottum leikjum o.s.fr.

Fyrir stuttu kíkti ég hingað og sá umfjöllun um Oblivion. Það kemur ekkert annað til greina en að fá sér leikinn en þar sem ég er að fara í samræmd próf eftir u.þ.b. mánuð (þrjár vikur til mánuður) þá ákvað ég að fá mér hann ekki fyrr en þau eru yfirstaðin. Aðallega til að halda betur einbeitingu meðan ég þessar leiðinda lærdómsvikur standa yfir.

En nú kem ég að kjarna málsins. Væru þið sem eigið leikinn ekki til í að senda inn skjáskot (screenshot) úr leiknum, af ykkar karakterum? Ekki einungis til að svala mínum brjálæðislegu tilhlökkunum heldur líka til að bera saman ykkar í milli (aðallega samt til að ég sturlist ekki meðan ég bíð). Svo virðist sem fólk eigi í erfiðleikum með að senda inn sjáskot úr leiknum en það hafa tvisvar komið lausnir á þessu vandamáli. Svo ég spyr er eftir einhverju að bíða?

Meða von um fleiri myndir af köllunum ykkar í Oblivion,
/Kv. Snjólfurinn