Eins og pósturinn segir í grófum dráttum þá er hægt að verða mög ríkur á því að vera skylmingaþræll í oblivion. Ég var orðinn nokk fátækur og átti varla fyrir bót á buxurnar eftir að ég keypti fyrsta armor settið mitt… Þá sá ég þetta fallega skilti “arena” og tjah… fann út hvar þetta var og varð skylmingaþræll. Það er ofsa gaman að berjast fyrir lífi þínu inni í hringnum og ekki eru verðlaunin af verri endanum :) Þú byrjar á 50 gullpeningum fyrir hvert match minnir mig en hækkar svo um rank og færð þá meiri pening. Núna er ég búinn að safna heilmiklum pening og characterinn minn farinn að líta sómasamlega út, aldrei þessu vant :) En já, ég mæli með hringnum fyrir þá sem vilja komast í action og fá pening í leiðinni. Arena er í imperial city og svæðið heitir arena district eða álíka.
O|||||||O