Jæja félagar

Núna fer Oblivion að koma út og er shipping-dagurinn á morgun. Það þýðir að flestar almennilegar búðir verða með hann til sölu þann 21.
Bt ætlar held ég að gera sitt besta til að vera með hann á þeim tíma, ég treysti þeim nú samt ekki til þess.

Núna ætla ég bara að athuga hvort einhver veit eftirfarandi. Kemur Collector's Edition til landsins á sama tíma? Því að mér langar að eignast gripinn þannig, held að það sé alveg þess virði.

Er vel spenntur fyrir þessum leik og á örugglega eftir að hanga heima dögum saman eftir kaupinn. Hvað segið þið annars? Hvenær ætlið þið að fá ykkur hann og hvernig útgáfu?

Bara svona til að hressa upp á áhugamálið áður en allir leggjast í Oblivion-dvala.
Hope u like this :)