'Eg tiltölulega nýbyrjaður að spila BG og það er sumt sem er að
angra mig og ég var að vona að reyndur spilari gæti aðstoðað mig.
'I fyrsta lagi þegar ég var að búa til karakterinn og “rolla”
abilities eiginleikanum þá kom upp soldið skrítið. 'Eg er með
human fighter og það kom 18/30 í strength. Hvað þýðir það? og
hvað eru góðar tölur með svona kall, hvað ætti ég að sætta mig
við?

Annað er þegar ég var kominn áleiðis og kominn inn í Friendly
Arm Inn og var búinn að hitta vini Gorians, ég var búin að
berjast nokkru sinnum og svona. Svo allt í einu þegar ég valdi
annan gaurinn (sem ég því miður man ekki hvað heitir en það var
gaurinn sem stamar í sífellu) þá urðu allir karakterarnir allt í
einu rauðir en þegar ég valdi einhvern annan þá voru þeir bara
eðlilegir á litinn. Hvurn fjandinn þýðir þetta????

Með fyrirfram þökk um hjálpina.